← Allar fréttir

Tækifærið · 15. nóvember 2026

Jafningastuðningur mikilvægastur

Tækifærið hefur tvo jafningaráðgjafa, Amadeusz og Kacper sem báðir hafa starfað með okkur frá fyrsta árinu 2022. Þeir koma báðir á öll námskeið Tækifærisins og segja sína sögu og vekja vonir um að breytingar séu mögulegar.

Þeir sem hafa verið utan vinnu og skóla (í NEET aðstæðum) í lengri tíma, gefast auðveldlega upp. Hætta að gera kröfur fyrir líf sitt og sætta sig við fátækt þrátt fyrir alvarlegar afleiðingar. Í slíkum aðstæðum er ekki nóg að lúta leiðsögn félagsráðgjafans Bjarkar sem býr við mikil forréttindi í lífinu. Kacper kom í liðinni viku og var með aldeilis frábæran fyrirlestur, þannig að það sló algjöra þögn á hópinn. jafningastuðningur hefur verið að ryðja sér til rúms í geðheilbrigðiskerfinu og það ekki að ástæðulausu. Kemur ekki í stað stað sérfræðikunnáttunnar en vekur svo sannarlega von og trú á lífið.