Hvað við gerum

Námskeið í Reykjavík

Sex vikna námskeið fyrir ungt fólk af erlendum uppruna sem vill komast inn á íslenskan vinnumarkað — í samvinnu við Vinnumálastofnun.

Hópur á hestbaki

Námskeiðið

Íslenskt samfélag og vinnumarkaður

Tækifærið býður upp á 6 vikna námskeið um íslenskt samfélag og vinnumarkað, ásamt einstaklings- og hópverkefnum sem snúa að persónulegum áskorunum ungs fólks.

Við kennum þér hvernig íslenskt samfélag og vinnumarkaður virka, hjálpum þér að búa til góða ferilskrá og kynningarbréf og æfum atvinnuviðtöl. Þú færð líka stuðning við atvinnuleit. Við vinnum jafnframt með þig sem einstakling — styrkleika þína, áskoranir og vellíðan — með andlegri, líkamlegri og félagslegri þjálfun.

Kennsla fer fram á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 11–15. Í hádeginu er boðið upp á létta hressingu fyrir þátttakendur.

Á kaffihúsi

Á hverjum degi

  1. 01

    borðum við saman

  2. 02

    lærum við saman

  3. 03

    hreyfum okkur saman

Starfsþjálfun

Fjárfest í ungum hæfileikum

Við vinnum með fjölbreyttum hópi fólks úr atvinnulífinu sem er staðráðið í að fjárfesta í ungum hæfileikum. Starfsþjálfun okkar er samstarfsverkefni Tækifærisins og þeirra atvinnurekenda sem ráða til sín þátttakendur frá okkur. Tækifærið fylgir fólki eftir á vinnumarkaði í a.m.k. 3 mánuði.

Hingað til hafa þátttakendur Tækifærisins unnið við endurbyggingu húsa, við bændahótel og landbúnaðarstörf utandyra. Þá hafa þeir unnið við bílaviðgerðir og rafmagnsvinnu. Þá höfum við tekið að okkur samfélagslega mikilvæg verkefni eins og undirbúning heimila fyrir úkraínska flóttamenn.

Girðingavinna

Dagskrá

Útivist og hreyfing

Útivist og hreyfing (t.d. gönguferðir, fjallgöngur og sund), hollt mataræði og skemmtileg sameiginleg upplifun eru mikilvægur hluti af nálgun okkar. Við viljum nýta tíma okkar úti í náttúrunni og upplifa alla þá kosti sem því fylgja.

Í lok hvers námskeiðs er farið í hestaferð.

Tásur í vatni
“I was happy with everything, we worked, we learned a lot, I suffered from anxiety but it disappeared, the best thing that happened to me in Iceland, perfect, I would recommend the resort to everyone.”

Þátttakandi

Viltu taka þátt?

Vinnumálastofnun vísar til okkar fólki sem þarf og vill fá okkar tækifæri. Hafðu samband ef þú hefur spurningar.

Hafðu samband