Vá – loks á að endurvekja heimasíðu Tækifærisins – orkan fór í námskeiðshald og vinnutengingu þátttakenda. Myndin er tekin í heimsókn á Reðursafnið, sem var valið af þátttakendum, ekki af Björk sem þó flestir halda ;-).
Í samvinnu við Vinnumálastofnun hófu 17 þátttakendur starf með okkur um miðjan janúar en 5 helltust úr lestinni. Af þeim 12 sem kláruðu námskeið eru nú í byrjun apríl 8 komnir með vinnu og einn fór aftur til síns upprunalands. Nú er verið að leita að rétta tækifærinu fyrir þá sem eftir standa og erum við bjartsýn – það er staður og verkefni fyrir alla í samfélaginu.