15. janúar 2024 hefst næsta námskeið Tækifærisins í samvinnu við Vinnumálastofnun. Um er að ræða 6 vikna námskeið þar sem ungt atvinnulaust fólk af erlendum uppruna fær fræðslu um íslenskt samfélag og íslenskan vinnumarkað um leið og unnið er með persónulegar áskoranir þátttakenda bæði með einstaklingsvinnu og í hópstarfi.