Hvað við gerum
Námskeið í Reykjavík
Fimm vikna námskeið fyrir ungt fólk af erlendum uppruna sem vill komast inn á íslenskan vinnumarkað — í samvinnu við Vinnumálastofnun.

Námskeiðið
Íslenskt samfélag og vinnumarkaður
Í samvinnu við Vinnumálastofnun býður Tækifærið upp á 5 vikna námskeið um íslenskt samfélag og vinnumarkað, ásamt einstaklingsvinnu sem snýr að persónulegum áskorunum ungs fólks.
Við kennum þátttakendum hvernig íslenskt samfélag og vinnumarkaður virka, hjálpum þeim að búa til góða ferilskrá og kynningarbréf. Þátttakendur fá stuðning við atvinnuleit og þjálfun í atvinnuviðtölum. Við vinnum saman að því að finna styrkleika hvors annars og hvernig við getum tekist á við áskoranir lífsins — með andlegri, líkamlegri og félagslegri þjálfun.
Kennsla fer fram á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 11–15. Í hádeginu er boðið upp á létta hressingu fyrir þátttakendur.
Á hverjum degi
-
01
borðum við saman
-
02
lærum við saman
-
03
hreyfum okkur saman
Starfsþjálfun
Fjárfest í ungum hæfileikum
Við vinnum með fjölbreyttum hópi fólks úr atvinnulífinu sem er staðráðið í að fjárfesta í ungum hæfileikum. Starfsþjálfun okkar er samstarfsverkefni Tækifærisins og þeirra atvinnurekenda sem ráða til sín þátttakendur frá okkur. Tækifærið fylgir fólki eftir á vinnumarkaði í a.m.k. 3 mánuði.
Hingað til hafa þátttakendur Tækifærisins unnið við endurbyggingu húsa, við bændahótel og landbúnaðarstörf utandyra. Þá hafa þeir unnið við bílaviðgerðir og rafmagnsvinnu. Þá höfum við tekið að okkur samfélagslega mikilvæg verkefni eins og undirbúning heimila fyrir úkraínska flóttamenn.

Dagskrá
Útivist og hreyfing
Útivist og hreyfing (t.d. gönguferðir, fjallgöngur og sund), hollt mataræði og skemmtileg sameiginleg upplifun eru mikilvægur hluti af nálgun okkar. Við viljum nýta tíma okkar úti í náttúrunni og upplifa alla þá kosti sem því fylgja.
Í lok hvers námskeiðs er gert eitthvað skemmtilegt. Þátttakendur velja og hefur verið farið í hestaferðir, FlyOver Iceland, í bogfimi, á reðursafnið og tvisvar höfum við splæst í dagsferðir í Borgarfjörð og að Sólheimum í Grímsnesi.

“I was happy with everything, we worked, we learned a lot, I suffered from anxiety but it disappeared, the best thing that happened to me in Iceland, perfect, I would recommend the resort to everyone.”
Þátttakandi
Mat þátttakenda
Eftir hvert námskeið meta þátttakendur starfið. Birt með leyfi þátttakenda.

Mat þátttakenda í maí 2026
Heildareinkunn 4.9
Sækja PDF ↗
Mat þátttakenda mars og apríl 2026
Heildareinkunn 4.7
Sækja PDF ↗
Mat þátttakenda jan – feb. 2026
Overall rating 4.6
Sækja PDF ↗
Mat þátttakenda
Sækja PDF ↗
Mat þátttakenda
Sækja PDF ↗
Mat þátttakenda
Heildareinkunn 4.6
Sækja PDF ↗
Vorið 2022 – skýrsla
Heildareinkunn 4.6
Sækja PDF ↗Viltu taka þátt?
Vinnumálastofnun vísar til okkar fólki sem þarf og vill fá okkar tækifæri. Hafðu samband ef þú hefur spurningar.
